Nám­skeið: Heil­næm úti­vist og fræðsla

21. febrúar 2025

Reykjavík

Vikulegar göngu- og fróðleiksferðir fyrir fólk sem einhvern tímann hefur greinst með krabbamein og aðstandendur.

Heilnæm útivist – andleg og líkamleg heilsubót!

Annað árið í röð býður Krabbameinsfélagið, í samstarfi við Ferðafélag Íslands, upp á vikulegar göngur sem fléttaðar eru ýmiskonar fróðleik um náttúru og sögu. Námskeiðið býðst öllum sem einhvern tíma hafa greinst með krabbamein og aðstandendum þeirra.

Með þessu er haldið áfram með verkefni sem stóð allt síðastliðið ár þegar tvö aðskilin námskeið voru haldin vor og haust. Mikil almenn ánægja var meðal þátttakenda.

Markmiðið er að njóta hollrar útivistar, fræðslu og félagsskapar við fólk sem deilir reynsluheimi og stuðla þannig að betri andlegri og líkamlegri heilsu fólks sem tekst á við afleiðingar krabbameins og meðferðar vegna þess.

Umsjónarmenn og fararstjórar eru sem fyrr þau Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir frá Ferðafélagi Íslands.

Námskeiðið hefst 18. janúar og stendur fram í júní.

2026-06-05T00:00

Örmálþing um tóbak og nikótín

19. mars 2025

Að mæta sér með auk­inni sjálfsmildi

2026-06-20T00:00

Betri rú­t­ína, betri svefn, betri líð­an

27. mars 2025

Fluguhnýtingar alla mánudaga

21. febrúar 2025

Nám­skeið: Heil­næm úti­vist og fræðsla

1. júlí

Hlaupum til góðs í Reykjavíkurmaraþoninu

24. júní

Vinningaskrá Sumarhappdrættis Krabbameinsfélagsins

4. júní

Hádegismálþing um tóbak og nikótín 5. júní

22. maí

Tóbakslausi dagurinn 31. maí

15. maí

Sumarhappdrætti Krabbameinsfélagsins 2026

1. maí

Maí er mánuður vitundar um húðkrabbamein