Þetta er svo lúmskt – Krabbamein í ristli og endaþarmi

 

Á hverju ári greinast á Íslandi  um 140 karlar og konur með krabbamein í ristli og endaþarmi, og að meðaltali deyr einn einstaklingur nánast í hverri viku af völdum þess. Þó er þetta sjúkdómur sem oft er hægt að fyrirbyggja og lækna ef hann uppgötvast nógu snemma.

Í þessari  fræðslumynd frá árinu 2011 er fjallað um þetta algenga krabbamein frá sjónarhóli lækna og hjúkrunarfræðinga, auk þess sem sjúklingar og aðstandandi segja frá baráttu sinni við sjúkdóminn.

Dagskrárgerð: Páll Kristinn Pálsson og Ólafur Sölvi Pálsson.
Framleiðandi: Epos kvikmyndagerð fyrir Krabbameinsfélag Reykjavíkur í samstarfi við Ristilfélagið og Stómasamtök Íslands.

 

Fleiri fræðslumyndir

Frá óvissu til vonar – Leghálskrabbamein á Íslandi

Brjóstamein

Aðgát í nærveru sólar – Húðkrabbamein

Karlamein – um krabbamein í blöðruhálskirtli

Þetta er svo lúmskt – Krabbamein í ristli og endaþarmi

Manni sjálfum að kenna – lungnasjúkdómar og reykingar