Húðkrabbamein eru mjög algeng og margs konar; sum hættulítil en önnur banvæn. Hættulegust eru svokölluð sortuæxli og á hverju ári látast nokkrir Íslendingar af völdum þess.
Í þessari íslensku heimildamynd frá árinu 2014 fjalla læknar um helstu tegundir húðkrabbameina, hvernig þau myndast og hvernig þau eru meðhöndluð. Tvær konur segja frá reynslu sinni af því að greinast með húðkrabbamein og aðstandandi rekur baráttusögu móður sinnar sem lést af völdum sortuæxlis.
Dagskrárgerð: Páll Kristinn Pálsson og Ólafur Sölvi Pálsson.
Framleiðandi: Epos kvikmyndagerð fyrir Krabbameinsfélag Reykjavíkur.
Fleiri fræðslumyndir
Frá óvissu til vonar – Leghálskrabbamein á Íslandi
Brjóstamein
Aðgát í nærveru sólar – Húðkrabbamein
Karlamein – um krabbamein í blöðruhálskirtli
Þetta er svo lúmskt – Krabbamein í ristli og endaþarmi
Manni sjálfum að kenna – lungnasjúkdómar og reykingar