Á hverju ári greinast á Íslandi um 140 karlar og konur með krabbamein í ristli og endaþarmi, og að meðaltali deyr einn einstaklingur nánast í hverri viku af völdum þess. Þó er þetta sjúkdómur sem oft er hægt að fyrirbyggja og lækna ef hann uppgötvast nógu snemma.
Í þessari fræðslumynd frá árinu 2011 er fjallað um þetta algenga krabbamein frá sjónarhóli lækna og hjúkrunarfræðinga, auk þess sem sjúklingar og aðstandandi segja frá baráttu sinni við sjúkdóminn.
Dagskrárgerð: Páll Kristinn Pálsson og Ólafur Sölvi Pálsson.
Framleiðandi: Epos kvikmyndagerð fyrir Krabbameinsfélag Reykjavíkur í samstarfi við Ristilfélagið og Stómasamtök Íslands.